Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1239, 125. löggjafarþing 322. mál: vegalög (reiðvegir, girðingar).
Lög nr. 54 17. maí 2000.
Þingskjal 1239, 125. löggjafarþing 322. mál: vegalög (reiðvegir, girðingar).
Lög nr. 54 17. maí 2000.
Lög um breytingu á vegalögum, nr. 45/1994, með síðari breytingum.
1. gr.
Við 9. gr. laganna bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Reiðvegir eru vegir sem einkum eru ætlaðir umferð ríðandi manna og eru kostaðir af einstaklingum, félagasamtökum, fyrirtækjum eða opinberum aðilum. Hjólreiða- og göngustígar eru einkum ætlaðir hjólandi og gangandi vegfarendum og eru kostaðir af einstaklingum, félagasamtökum, fyrirtækjum eða opinberum aðilum.2. gr.
Fyrri málsliður 1. mgr. 11. gr. laganna orðast svo: Ráðherra getur að fengnum tillögum vegamálastjóra heimilað eignarnám lands til lagningar tiltekinna almennra vega, einkavega, reiðvega og hjólreiða- og göngustíga, enda komi fullar bætur fyrir.3. gr.
Fyrirsögn IV. kafla laganna verður: Almennir vegir, einkavegir, reiðvegir og hjólreiða- og göngustígar.4. gr.
Í stað orðsins „gangstíga“ í 20. gr. laganna kemur: hjólreiða- og göngustíga.5. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 39. gr. laganna:- 1. málsl. 1. mgr. orðast svo: Landeigandi skal annast viðhald girðinga með vegum í landi sínu, sbr. þó 4. mgr.
- Við greinina bætist ný málsgrein sem verður 4. mgr. og orðast svo:
- 4. mgr. verður 5. mgr. og orðast svo:
6. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. júní 2000.Samþykkt á Alþingi 8. maí 2000.